Mikil þróun á kæli- og frystibúnaði. Bylting í meðferð hráefnis.

Mikil þróun á kæli- og frystibúnaði. Bylting í meðferð hráefnis.

Mikil þróun hefur verið í kælibúnaði á undanförnum árum og er þar KAPP í fararbroddi á mörgum sviðum.

Með því að nota nýjasta kælibúnaðinn þá hefur meðferð hráefnis tekið miklum breytingum, sem líkja má við byltingu.

 

Bylting úti á sjó

Breyttar vinnuaðferðir um borð í skipum hefur verið gjörbylt þannig að hráefni sem kemur í land er nú undir núll gráðum, þó ekki þannig að fiskurinn sé farinn að frjósa. Við þetta hefur gæði afla aukist muna og ending ferskfisks aukist um marga dag.

OptimICE® krapavélarnar frá KAPP eiga stóran hlut í þessari byltingu og sjá til þess að aflinn kólni hratt niður fyrir frostmark og haldist í ca -0,5°C allan veiðitúrinn.

KAPP_Optimice_krapavél_liquid_ice_machine

OptimICE® krapavél er fyrir alla báta og skip og nú er komin ný útfærsla með CO2.

Kælingin með OptimICE® tekur ca 1 klst. meðan flöguísinn kælir aflann á ca 15 klst. og nær samt aldrei að fara undir 0°C. Bakteríumyndun er nánast engin með OptimICE® meðan hún er komin á fleygi ferð með flöguísnum sem þýðir að hillutíminn lengist um allt að 7 daga.

 

Mikil breyting í landvinnslu

Kæli- og frystibúnaður í landvinnslum er viðamikill, fjölbreyttur og oft frekar flókinn. Allur búnaðurinn þarf að virka eins og lagt er upp með, annars er hætta á að vinnslan stöðvist.

Sjálfvirkni hefur aukist og þar með rekstraröryggi, auk þess sem nýju kerfin eru mun umhverfisvænni en þau gömlu.

Talsverður tími fer í reglulegt eftirlit og fyrirbyggjandi viðhald til að koma í veg fyrir vinnslustopp, grípa til aðgerða áður en búnaðurinn stoppar einhverra hluta vegna.

Með aukinni tækni er hægt fylgst með kerfunum í gegnum símann hvar og hvenær sem er, sem er mikill munur frá fyrri tíð.

KAPP_forkælir_Pree_Cooler_Optimice

OptimICE® forkælir er bæði fyrir skip og landvinnslu.

KAPP býður m.a. upp á OptimICE® forkæla til að kæla hráefni í öllu vinnsluferlinu og halda hitastiginu kringum 0°C allt ferlið.

 

KAPP kælibúnaður og samskiptakerfi

Einnig er KAPP með fjölbreytt úrval af samskiptabúnaði sem býður upp á ýmsa möguleika hvað varðar fjartengingu sem og að tengja saman mismunandi samskipta staðla og láta stýrivélar frá mismunandi framleiðendum hafa samskipti sín á milli.

Til að allt þetta virki saman þá þarf að forrita búnaðinn og þá kemur tæknideild KAPP sterkt inn með hátæknifræðingum sem forrita, t.d. með SCADA og þ.h. kerfum.

KAPP_Óson_hreinsibúnaður

KAPP Ósonlausnir fyrir allan matvælaiðnað.

Í allri matvinnslu er öflug hreinsun á tækjum, leiðslum og vatni mikilvæg. Með ósonlausnum frá KAPP er komin lausn sem er einföld í notkun og virkar við nánast allar aðstæður auk þess sem geymsluþol getur aukist til muna.

Óson er einn sterkasti náttúrulegi oxarinn til gerileyðingar og sótthreinsunar sem til er í heiminum og getur drepið allt að 99,9% allra gerla, baktería, vírusa og annara örvera sem finnast í matvælum. Óson skilur heldur ekki eftir sig nein hættuleg aukaefni eftir að það hefur gegnt hlutverki sínu og hentar því einstaklega vel við gerla- og bakteríudráp fyrir matvælaiðnað.

 

KAPP lausnir fyrir alla kælingu

KAPP er með lausnir fyrir alla kælingu og frystingu fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Umhverfismál eru í forgangi í öllum okkar aðgerðum þar sem reynt er að finna umhverfisvænustu lausnina. Allir kælistarfsmenn KAPP eru með umhverfisvottun frá Umhverfisstofnun.

KAPP_klælivottun_umhverfisstofnun

Hér sést hlut af starfsmönnum kælideildar KAPP á námskeiði um umhverfisvænar kælilausnir. Allir starfsmenn kælideildar eru vottaðir af Umhverfisstofnun.

 

Frétt þessi sýnir nokkrar lausnir sem KAPP býður upp á í kælingu og frystingu. Auk þess sem vísað er í viðtali á heimasíðu Samherja þar sem rætt er við Jakob Björnsson vélstjóra í vinnsluhúsi Útgerðarfélags Akureyringa og Gest Geirsson framkvæmdastjóra landvinnslu Samherja.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir fá verkefnum KAPP undanfarið:

KAPP_kæling_frysting_þjónusta

Kæli- og frystikerfi geta verið viðamikil og flókin og þurfa að tengjast fullkomlega saman. 

KAPP_kæling_frysting_þjónusta

Starfsmenn KAPP setja upp umhverfisvæna hliðarkælingu. 

KAPP_kæling_frysting_þjónusta

Krapagámur með OptimICE® krapavél komið fyrir til að kæla afla við löndun uppsjávarfisks. 

KAPP_kæling_frysting_þjónustaHér eru stafsmenn KAPP að vinna við stækkun á frystigetu frystitogara.

KAPP_kæling_frysting_þjónusta

Mæling á hitastigi þorsks við komu í Hraðfrystihús Hellisands eftir vikulanga veiðiferð þar sem landað var á Siglufirði og aflanum ekið til Hellissands. Hitastigið hefur haldist í -0,7°C allan tímann.

 

KAPP_kæling_frysting_þjónusta

Unnið við uppsetningu á nýju kælikerfi hjá loðnuvinnslu. 

KAPP_kæling_frysting_þjónusta

Lausfrysti komið fyrir. 

KAPP_kæling_frysting_þjónusta

Starfsmaður vinnur við tengingu rafmagnskapla frystikerfis.

Fleiri fréttir

  • Frábæri sjávarútvegssýning í Barcelona lokið

    Frábæri sjávarútvegssýning í Barcelona lokið

  • Öflugt renniverkstæði hjá KAPP

    Öflugt renniverkstæði hjá KAPP

  • Rafstöð sett upp fyrir Krónuna á Fitjum

    Rafstöð sett upp fyrir Krónuna á Fitjum

  • Óson lyktareyðing fyrir veitingastaði

    Óson lyktareyðing fyrir veitingastaði

  • Mikið úrval af hurðum hjá KAPP

    Mikið úrval af hurðum hjá KAPP

  • Samsettir frysti- og kæligámar hjá Sælkerabúðinni

    Samsettir frysti- og kæligámar hjá Sælkerabúðinni

  • Skötuveisla KAPP sló öll met

    Skötuveisla KAPP sló öll met

  • Pikkoló - sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu

    Pikkoló - sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu

  • Reynir Pétur kominn heim

    Reynir Pétur kominn heim

  • KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2023

    KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2023

  • Ný töskubelti í Leifsstöð

    Ný töskubelti í Leifsstöð

  • KAPP og Eðalfiskur skrifa undir samning á Aqua Nor

    KAPP og Eðalfiskur skrifa undir samning á Aqua Nor